Vegstikur vísa veginn

Vegstikur vísa veginn

Kaupa Í körfu

Holtavörðuheiði Vegstikum skipt út á heiðinni Starfsmenn Vegagerðarinnar unnu við það í vikunni að skipta út ónýtum vegstikum á Holta vörðuheiði og setja niður nýjar með þar til gerðri vél. Skipta þarf reglulega um stikur sem fara jafnan illa í snjómokstri að vetri til, eða skemmast af öðrum völdum. Stikurnar eru mikilvægt ör yggistæki fyrir vegfarendur en umferð yfir heiðina er jafnan mjög mikil. Svonefndar snjóstik ur krefjast einnig viðhalds og endurbóta en þær eru í vegkanti þar sem mestu snjóþyngslin eru á leiðinni. Nú er rétti árstíminn til að ráðast í framkvæmd sem þessa, áður en vetur konungur bankar á dyrnar og moka þarf heiðina á ný. Stikurnar eru jafnframt mik ilvægar í mikilli þoku, sem kem ur oft upp á Holtavörðuheiði.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar