Piparkökuhús borið inn í Kokku

Morgunblaðið/Árni Sæberg

Piparkökuhús borið inn í Kokku

Kaupa Í körfu

Verslanir bæði á höfuðborgarsvæðinu og um land allt eru komnar vel á veg að undirbúa jólavertíðina. Liður í því er að gera útstillingar í gluggum jólalegar. Er ljósmyndari Morgunblaðsins átti leið um Laugaveginn í gær var verið að bera inn hluta af stærðarinnar piparkökuhúsi í verslunina Kokku sem verður þar úti í glugga fram að jólum. Í dag og um helgina færist jólaandinn yfir helstu verslunarsvæðin. Þannig verður Jólaþorpið í Hafnarfirði opnað og á morgun verður kveikt á Jólakettinum á Lækjartorgi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar