Útför björunarsveitarmans Landakoti

Útför björunarsveitarmans Landakoti

Kaupa Í körfu

Útför Sigurðar Kristófers McQuillan Óskarssonar fór fram í Kristskirkju í Landa koti í gær, en Sigurður lést af slysförum við björgunaræfingu í Tungufljót fyrr í þessum mánuði. „Það eru allir slegnir eftir þetta hörmulega slys,“ segir Jón Þór Víglundsson, upplýs ingafulltrúi Slysavarnafélags ins Landsbjargar. „Við höfum fundið fyrir miklum samhug hjá borgurum landsins eftir slysið og sem betur fer eru svona slys ekki algeng og það voru nokkrir áratugir síðan við höfðum misst björgunarsveitarmann við æf ingar þar til núna.“ Félagar úr Slysavarnafélaginu Landsbjörg stóðu heiðursvörð þegar kistan var borin út, en séra Patrick Breen jarðsöng ásamt séra Jakob Rolland. Fyrir útförina söng Karen Ósk Björns dóttir, systurdóttir Sigurðar, lag við undirleik Bjarna Trausta sonar gítarleikara. Í útförinni söng Bernadette Hegyi og org anisti var Márton Wirth.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar