Útför Egils Þórs Jónssonar

Útför Egils Þórs Jónssonar

Kaupa Í körfu

Fjölmenni var við útför Egils Þórs Jónssonar, fv. borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, frá Grafar vogskirkju í gær. Séra Guðni Már Harðarson jarðsöng. Egill Þór lést 20. desember sl. 34 ára að aldri, eftir hetjulega bar áttu við krabbamein. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö ung börn. Tónlist í athöfninni fluttu Daníel Ágúst Haraldsson og meðlimir Gospeltóna, þau Hrönn Svans dóttir, Fanny K. Tryggvadóttir og Óskar Einarsson. Félagar Egils í Oddfellow reglunni stóðu heiðursvörð í kirkj unni og fyrir utan við líkfylgdina voru ungliðar úr Sjálfstæðis flokknum og stúdentapólitíkinni.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar