Stefán Baldvinsson - Elva Dröfn EA

Kristján Kristjánsson

Stefán Baldvinsson - Elva Dröfn EA

Kaupa Í körfu

Ágætis kropp á línu ÁGÆTIS kropp hefur verið undanfarna daga hjá smábátasjómönnum á Akureyri sem róa með línu. Þá eru þeir sem eru á netum einnig farnir að reyna fyrir sér og í gær kom Tryggvi Valsteinsson á Svani Þór EA með tæp 400 kg af þorski að landi. Stefán Baldvinsson á Elvu Dröfn EA fékk m.a. um 250 kg af þorski á línu í gær og hann sagði að ágætis kropp hefði verið síðasta mánuðinn en þó væri dagamunur á. Trillukarlarnir hafa verið á veiðum við Svalbarðseyri og út undir Hörgárgrunni.MYNDATEXTI: Smábátasjómenn hafa fengið þokkalegan afla á línu að undanförnu. Smábátasjómenn á Akureyri hafa verið að fá þokkalegan afla á línu að undanförnu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar