Günther Rall

Þorkell Þorkelsson

Günther Rall

Kaupa Í körfu

ÞÝSKI flugmaðurinn Günther Rall verður heiðursgestur á fundi hjá Fyrsta flugs félaginu annað kvöld, föstudagskvöld, en hann var orrustuflugmaður í seinni heimsstyrjöldinni í þýska flughernum, Luftwaffe, og skaut niður fjölda flugvéla. Günther Rall, sem er lengst til hægri á myndinni, kom til landsins í gær og hitti þá Þorstein Jónsson flugmann sem einnig var orrustuflugmaður en í breska hernum, og Gunnar Þorsteinsson, formann Fyrsta flugs félagsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar