Nesstofa - Fæðingartöng

Nesstofa - Fæðingartöng

Kaupa Í körfu

Lækningatól frá liðinni tíð Í Nesstofu á Seltjarnarnesi er Lækningaminjasafnið til húsa. Þar gefur m.a. að líta fót í formalíni, fæðingartangir og innþornað mannsauga. VEL er við hæfi að lækningaminjasafnið sé í húsi því sem sérstaklega var reist yfir Bjarna Pálsson sem fyrstur var skipaður landlæknir á Íslandi. Sjálfur konungurinn úrskurðaði að svo skyldi vera árið 1760. Nesstofa reis þremur árum seinna og frá þeim tíma og allt til dauðadags bjó og starfaði Bjarni í þessu glæsilega húsi sem er eitt elsta steinhús landsins. MYNDATEXTI: Fæðingartöng frá 18. öld. Stór og groddaleg gaddastöng úr járni, sem gripið var til ef vonlaust var að barn gæti fæðst lifandi og móðirin í lífshættu. Læknaminjasafnið

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar