Jón Otti í hafnarkjaftinum

Jim Smart

Jón Otti í hafnarkjaftinum

Kaupa Í körfu

Engeyjarsund þreytt í fyrsta sinn í 40 ár JÓN Otti Gíslason lögreglumaður synti í gær frá Engey inn í Reykjavíkurhöfn, en Engeyjarsund mun síðast hafa verið þreytt á sjómannadaginn árið 1961. MYNDATEXTI: Jón Otti í hafnarkjaftinum milli Ingólfsgarðs og Norðurgarðs. "Mikið helvíti líður mél vel núna," sagði Jón Otti Gíslason lögreglumaður, kaldur og þrekaður, er hann var kominn á land í Reykjavíkurhöfn eftir rúmlega klukkustundar sund utan úr Engey. Meðal þeirra sem fyrstir fögnuðu honum eftir landtökuna var Eyjólfur Jónsson, sjósundkappi og tengdafaðir hans. Fjörutíu ár voru liðin frá því Engarsund var síðast þreytt en þar var Eyjólfur að verki ásamt fjórum öðrum lögregluþjónum; á sjómannadaginn 1961

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar