Vatnsfontur

Golli/ Kjartan Þorbjörnsson

Vatnsfontur

Kaupa Í körfu

KVENFÉLAG Garðabæjar hefur ákveðið að færa Garðabæ vatnspóst að gjöf í tilefni af 25 ára kaupstaðarafmæli bæjarins. Tilefnið er einnig átak Kvenfélagasambands Íslands um aukna vatnsdrykkju og er tilgangurinn sá að vekja fólk til umhugsunar um hollustu vatns og að fólki neyti vatns í stað sykraðra gosdrykkja. Þór Sigmundsson steinsmiður sér um hönnun og smíði vatnspóstsins en hann er um einn metri á hæð og höggvinn í grágrýti. Ráðgert er að setja hann upp í sumar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar