Hedwig - Söngleikur

Hedwig - Söngleikur

Kaupa Í körfu

Sumarsöngleikurinn Hedwig ÆFINGAR eru hafnar á rokksöngleiknum Hedwig eftir John Cameron Mitchell og Stephen Trask./Tveir leikarar flytja verkið, þau Björgvin Frans Gíslason sem fer með hlutverk Hedwig, en Björgvin lauk námi við leiklistardeild Listaháskóla Íslands í vor og Ragnhildur Gísladóttir leikur Yitzak. Hljómsveitin Reiða restin er skipuð þeim Stefáni Má Stefánssyni, Guðna Finnssyni, Birgi Baldurssyni, Pétri Þór Benediktssyni og Jóni Ólafssyni sem einnig er tónlistarstjóri sýningarinnar. Leikstjóri er Magnús Geir Þórðarson, þýðandi er Gísli Rúnar Jónsson og leikmynd hannar Snorri Freyr Hilmarsson. MYNDATEXTI: Leikarar, hljómsveit og stjórnendur í söngleiknum Hedwig. Loftkastalinn

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar