Fyrsta skóflustunga af Hótel Búðum

Golli/ Kjartan Þorbjörnsson

Fyrsta skóflustunga af Hótel Búðum

Kaupa Í körfu

SIGRÍÐUR Gísladóttir, myndlistarmaður og fyrrverandi hótelstýra á Búðum, tók fyrstu skóflustunguna að nýju hóteli á Búðum síðastliðinn sunnudag í blíðskaparveðri. Fjöldi gesta var viðstaddur athöfnina, bæði úr Reykjavík og Snæfellsbæ. Var það mál manna að mikil fengur væri að nýju hóteli á Búðum og vænta menn þess að þar verði hægt að byggja upp svipaðan sjarma og einkenndi gamla hótelið. Eigendur og forsvarsmenn Hótel Búða höfðu sett upp veislutjald þar sem gat að líta teikningar af fyrirhugaðri hótelbyggingu og arkitekt hússins kynnti þær fyrir gestum meðan þeir gæddu sér á grillmat og öðrum veitingum sem boðið var upp á.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar