Ólafur Ragnar Grímsson

Ólafur Ragnar Grímsson

Kaupa Í körfu

Tveggja daga opinber heimsókn forseta Íslands, Ólafs Ragnars Grímssonar, til Norður-Þingeyjarsýslu hófst í gær í blíðskaparveðri. Forsetinn og fylgdarlið hans skoðuðu m.a. Dettifoss og Ásbyrgi. Þrettán ára trompetleikari, Magnea Dröfn Hlynsdóttir, lék tvö lög fyrir forseta og föruneyti við komuna að fossinum, undir niði Jökulsár á Fjöllum. Pabbi hennar, Hlynur Bragason, þurfti að halda nótunum fyrir dóttur sína svo að þær fykju ekki út í veður og vind. ( Ólafur Ragnar Grímsson í opinberri heimsókn í Norður-Þingeyjarsýslu 10. september 2001)

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar