Þak lagt á Smáralind

Golli/ Kjartan Þorbjörnsson

Þak lagt á Smáralind

Kaupa Í körfu

BÚIÐ er að valsa álið í síðasta áfanga klæðningar á þaki verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar í Kópavogi. Unnið er við að leggja álið á þakið. Í lok síðustu viku voru 709 manns að störfum á byggingarsvæði Smáralindar en gert er ráð fyrir að fjöldi starfsmanna á vegum verktaka verði um 800 í lok þessarar viku eða byrjun þeirrar næstu. Vinna er hafin á næturvöktum við einstaka þætti verksins. Búið er að malbika tæp 70 prósent af því sem malbika þarf af bílastæðum. Hellulögn á bílastæðaeyjum og meðfram miðhúsi að sunnanverðu ásamt lagningu snjóbræðsluröra er langt á veg komin. Alls verða hellulagðir um 8.000 fermetrar og malbikaðir um 70.000 fermetrar á svæðinu við Smáralind.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar