Hagkaup

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Hagkaup

Kaupa Í körfu

Í gær var síðasti hefðbundni afgreiðsludagur Hagkaups í Smáratorgi í Kópavogi því verslunin er að flytja sig um set yfir í Smáralind þar sem opnuð verður 10.000 fermetra verslun 10. október næstkomandi. Af þessu tilefni hefst í dag kl. 14 lagerútsala í verslun Hagkaups á Smáratorgi. Vörur sem eftir eru í versluninni verða seldar með verulegum afslætti auk þess sem vörur á lager verða seldar með allt að 75% afslætti. 30% afsláttur verður veittur af matvöru, 40-70% af fatnaði og 40% afsláttur verður veittur af húsbúnaði, raftækjum og leikföngum. Útsölunni lýkur á morgun.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar