Tjónabíll kemur þeim til Disney World

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Tjónabíll kemur þeim til Disney World

Kaupa Í körfu

Gamall draumur bræðra með sjaldgæfan vöðvarýrnunarsjúkdóm er um það bil að rætast Tjónabíll kemur þeim til Disney World ÞEIR voru spenntir á svip, bræðurnir Friðrik og Sigurður Guðmundssynir, í gær þar sem þeir fylgdust með uppboði á Mitsubishi Lancer Station af árgerð '98 en uppboðið fór fram hjá Sjóvá-Almennum. Ástæðan var ekki sú að þeir væru sérstakir áhugamenn um bifreiðamál heldur eygðu þeir í þessum klessta bíl von um að láta gamlan draum rætast. Draumurinn er að ferðast til Disney World í Flórída í Bandaríkjunum, sem er hægara sagt en gert fyrir þá bræður því að báðir eru þeir bundnir við hjólastól. MYNDATEXTI. Bræðurnir skoðuðu bílinn góða vel og vandlega fyrir uppboðið og voru nokkuð ánægðir með hversu skemmdirnar á honum voru lítilfjörlegar. ( Sjóvá Almennar gefa bíl )

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar