Grunur um miltisbrand í pósti

Morgunblaðið/Júlíus

Grunur um miltisbrand í pósti

Kaupa Í körfu

15 manns gefið sýklalyf gegn miltisbrandi Starfshópi ætlað að skila tillögum um aðgerðir gegn eiturefnahernaði FIMMTÁN manns var gefið sýklalyf gegn hugsanlegu miltisbrandssmiti eftir að hvítt duft, sem talið var að gæti innihaldið miltisbrandsgró, féll úr umbúðum utan af breska tímaritinu The Economist þegar það var opnað á skrifstofum Borgarendurskoðunar við Tjarnargöti 12 í gær. MYNDATEXTI: Tveir starfsmenn Borgarendurskoðunar voru fluttir á slysadeild en þeir komust í snertingu við duft sem talið var að gæti innihaldið miltisbrandsgró. ____________________ Lögregla í Reykjavík og Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins voru kölluð að húsnæði Borgarendurskoðunar, að Tjarnargötu 12, í hádeginu vegna torkennilegrar póstsendingar sem borist hafði til Borgarendurskoðunar. Í bréfinu var hvítt duft og fóru slökkviliðsmenn í eiturefnabúningum inn í húsið til þess að ná í það. Mikill viðbúnaður var við Tjarnargötu í kjölfarið og lokaði lögregla götunni í báða enda. Þá var hluti hússins rýmdur.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar