Kindur í snjó við Þjórsá

Rax /Ragnar Axelsson

Kindur í snjó við Þjórsá

Kaupa Í körfu

Fátt um fína drætti ÞAÐ er ekkert sældarlíf að vera kind á beit þessa dagana því hvergi er stingandi strá að finna fyrir mjöllinni sem hefur hertekið hagana. Þessar ær, sem héldu til við Þjórsá, þegar ljósmyndari Morgunblaðsins átti þar leið hjá á dögunum, mændu löngunarfullum augum að honum, líklega í von um að hann hefði eitthvað grænt og gómsætt að færa þeim. Þær vonir urðu þó að engu því það eina sem hann hafði upp á að bjóða var smellur í myndavél og ósk um bros frá hinum ferfættu fyrirsætum. EKKI ANNAR TEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar