Havel

Sverrir Vilhelmsson

Havel

Kaupa Í körfu

TÉKKNESKU forsetahjónin yfirgáfu landið í flugvél sinni laust eftir hádegi í gærdag eftir 9 daga dvöl hérlendis í sumarhúsi í boði forseta Íslands. Havel og frú hafa haft hægt um sig á meðan á dvölinni hefur staðið enda tilgangur heimsóknarinnar að njóta hvíldar og kyrrðar hérlendis en forðast fjölmiðla og pólitískt argaþras. Havel, sem hefur átt við heilsubrest að stríða, gaf þó íslenskum fjölmiðlum færi á sér skömmu fyrir brottför á Keflavíkurflugvelli og svaraði stuttum spurningum fréttamanna. MYNDATEXTI: VÁCLAV Havel, forseti Tékklands og eiginkona hans, Dagmar Havlova Havel, kveðja skömmu fyrir flugtak í gærdag.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar