Nauthólsvík

Nauthólsvík

Kaupa Í körfu

Krakkar á námskeiðum siglingaklúbbsins í Siglunesi brugðu á leik í blíðviðrinu sem gladdi íbúa höfuðborgarsvæðisins í gær. Börnin nýttu blíðuna til að róa kajökum, kanóum og árabátum. Boðið er upp á heilsdagsnámskeið fyrir börn á aldrinum átta til tólf ára í Siglunesi. Fyrir hádegi er lögð áhersla á leiki, útivist og stuttar ferðir innan borgarinnar, en eftir hádegi eru siglingar aðalviðfangsefni krakkanna.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar