Borgarlistamenn

Sverrir Vilhelmsson

Borgarlistamenn

Kaupa Í körfu

Á degi menningarnætur var tilkynnt hvaða listamenn hafa fengið úthlutað starfslaunum borgarinnar 1999 og einnig hvaða tónlistarhópur hefur fengið rekstrarstyrk borgarinnar þetta ár. Starfslaun borgarinnar til listamanna 1999 skiptast milli ellefu listamanna þannig: Myndlist: Ragna Róbertsdóttir 12 mánuðir, Finnbogi Pétursson 6 mánuðir, Finnur Arnar Arnarsson 6 mánuðir, Guðrún Gunnarsdóttir 3 mánuðir, Eggert Pétursson 3 mánuðir, Ósk Vilhjálmsdóttir 3 mánuðir. Bókmenntir og leiklist: Sigurjón B. Sigurðsson (SJÓN) rithöfundur 3 mánuðir, Ingibjörg Hjartardóttir leikskáld 3 mánuðir. Tónlist: Snorri Sigfús Birgisson tónskáld og píanóleikari 9 mánuðir, Tómas R. Einarsson kontrabassaleikari 4 mánuðir, Guðrún Óskarsdóttir semballeikari 3 mánuðir. Borgarlistamenn ársins 1999 ásamt borgarstjóra.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar