Landkönnun

Jim Smart

Landkönnun

Kaupa Í körfu

Nýjar rannsóknir staðfesta dvöl íslenskra landkönnuða á Nýfundnalandi staðfest "Söguleg stund" að mati menntamálaráðherra NÝJAR rannsóknar á eld-tinnu, eða jaspis, frá víkingaöld sem fannst fyrir mörgum árum við fornleifagröft við L'Anse aux Meadows á norðurodda Nýfundnalands, benda eindregið til þess að íslenskir menn hafi komið þar við sögu. Ennfremur eru líkur taldar á því að téður staður sé Straumsfjörður sem getið er um í Grænlendingasögu og þar sem Snorri Þorfinnsson (Karlsefnis) fæddist fyrstur evrópskra manna í nýja heiminum . MYNDATEXTI: Dr. Kevin H. Smith, aðstoðarforstöðumaður við Vísindasafnið í Buffalo, útskýrir mikilvægi jaspis-brota sem fundust í víkingabyggð við L'Anse aux Meadows á Nýfundnalandi. Steinninn var m.a. notaður til að tendra eld og var nánast eldspýtnastokkur í vasa víkinga.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar