Barnaspítali Hringsins

Jim Smart

Barnaspítali Hringsins

Kaupa Í körfu

Þessar ungu stúlkur, Rósa Líf Christiansen, Ólína Kristjánsdóttir og Edda Árnadóttir, afhentu barnaspítala Hringsins 32 þúsund krónur sem þær söfnuðu á flóamarkaði í Mjódd. Þær voru útsjónarsamar við að afla hluta á markaðinn og leituðu m.a. til Steingríms Hermannssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, sem brást vel við eins og fleiri. Það voru læknarnir Ásgeir Haraldsson og Atli Dagbjartsson sem tóku við peningunum fyrir hönd barnaspítalans, en þeir koma að góðum notum því nú er verið að byrja að byggja hann.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar