Helllisbúinn

Þorkell Þorkelsson

Helllisbúinn

Kaupa Í körfu

Leikritið Hellisbúinn sem, sýnt er í Íslensku óperunni, sló aðsóknarmet um síðustu helgi. Aldrei fyrr hafa fleiri leikhúsgestir séð sömu uppfærslu á leikriti hérlendis. Gamla metið átti leikritið Fló á skinni sem sýnt var í gamla Iðnó þrjú leikár í röð, frá 1972 til 1975. Alls urðu sýningar 252 og uppfærsluna sáu 56.724 manns samkvæmt upplýsingum frá Leikfélagi Reykjavíkur. Þegar 163. sýningu Hellisbúans lauk sl. laugardag höfðu 57.106 gestir séð uppfærsluna og aðsóknarmet Fló á skinni því slegið. Davíð Oddsson forsætisráðherra og eiginkona hans Ástríður Thorarensen voru meðal sérstakra heiðursgesta á sýningunni um helgina, og klöppuðu Bjarna Hauki lof í lófa fyrir frammistöðu hans.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar