Listabrautin

Listabrautin

Kaupa Í körfu

Vegaframkvæmdir standa nú yfir við Listabraut, milli Borgarleikhússins og Kringlunnar og Verslunarskólans. Verið er að breyta götunni og lagfæra tengingar inn á Kringluna. Umferðarljós verða komin á gatnamót Listabrautar og nýju Kringlunnar um miðjan mánuðinn, að sögn Haralds Alfreðssonar, verkfræðings hjá gatnamálastjóra. Auk umferðarljósanna er verið að færa til strætisvagnaútskot við Verslunarskólann og ýmislegt annað, en markmið framkvæmdanna er að greiða fyrir umferð að nýju Kringlunni, sem opnuð verður í lok september.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar