Eyjabakkar

Eyjabakkar

Kaupa Í körfu

Mótmæli gegn Fljótsdalsvirkjun við Eyjabakka um helgina. Milli 120 og 140 manns komu saman við stíflustæði fyrirhugaðs Eyjabakkalóns á laugardag til þess að mótmæla fyrirhuguðum virkjunarframkvæmdum. Fólk á öllum aldri og úr ólíkum hópum þjóðfélagsins tók þátt í gjörningnum. Þar mátti sjá leikara, skáld, þingmenn, myndlistarmenn, fræðimenn, leiðsögumenn og kennara, svo eitthvað sé nefnt. Að auki voru þar á ferð erlendir fræðimenn og fulltrúar World Wildlife Fund frá Noregi og Bretlandi sem voru hérlendis til að kynna sér málefnið. Þátttakendur komu jafnframt frá ólíkum stöðum af landinu, einna helst frá höfuðborgarsvæðinu og Austurlandi. Nú má lesa þjóðsöng Íslendinga af steinum sem liggja með jöfnu millibili ef gengið er eftir fyrirhuguðu stíflustæði, frá Jökulsá í Fljótsdal að Snæfelli, um 3 km leið, en fyrirhuguð stífla er rúmir 4 km að lengd. Sæberg 68 steinum hafði verið raðað á jörðina við rætur Snæfells, við annan enda fyrirhugaðrar stíflu Eyjabakkalóns. Síðan gekk hver og einn með sinn stein í fanginu eftir stikaðri leið frá öðrum enda fyrirhugaðrar stíflu til annars. Efri myndin sýnir steinana sem á voru grafin orðin í fyrsta versi þjóðsöngs Íslendinga og var hann sunginn af þátttakendum í lok gjörningsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar