Búðardalur

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Búðardalur

Kaupa Í körfu

Mjólkursamlagið í Búðardal nýtur ávaxtanna af vel heppnaðri vöruþróun og færir út kvíarnar austur á bóginn. Í Mjólkursamlaginu í Búðardal eru framleiddar nokkrar af vinsælustu sérvöruunum sem mjólkuriðnaðurinn hefur á boðstólum um þessar mundir. Starfsemin hefur vaxið hröðum skrefum og unnið er að stækkun húsnæðis. Samlagið hefur nú tekið við rekstri mjólkursamlagsins á Blönduósi og tvöfaldar með því innvegna mjólk. Unnið er að því að byggja við húsnæði Mjólkursamlagsins í Búðardal. Hér eru Sigurður Rúnar Friðjónsson mjólkursamlagsstjóri, Sævar Hjaltason framleiðslustjóri og Elísabet Svansdóttir gæðastjóri í við byggingunni. Tveir deildar stjórar voru ekki viðstaddir myndatöku, Jóhannes Haukur Hauksson, ostameistari og vöruþróunarstjóri, og Páll Svavarsson, mjólkursamlagsstjóri á Blönduósi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar