Karfa í Reykjanesbæ

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Karfa í Reykjanesbæ

Kaupa Í körfu

SAMEINAÐ körfuknattleikslið Reykjanesbæjar, er keppti undir merkjum Íþróttabandalags Reykjaness, gersigraði enska liðið London Leopards í fyrri leik liðanna í svonefndu Korac- Cup, einu Evrópumótanna, 111:75, í Keflavík í gær. Sameinaðir Suðurnesjamenn, sem hafa löngum eldað grátt silfur saman, léku á als oddi og slógu gestina útaf laginu ­ sýndu frábæran leik. Á myndinni ráða heimamenn ráðum sínum í leikhléi undir handleiðslu Friðriks Inga Rúnarssonar, til vinstri, og Sigurðar Ingimundarsonar, sem þjálfa liðið í sameiningu. Leikurinn / B2

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar