Þróttarar

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Þróttarar

Kaupa Í körfu

Stuðningsmenn Þróttar héldu hátíð um helgina. Á föstudag fékk íþróttafélagið formlega afhent nýtt hús í Laugardal og á föstudagskvöld bjargaði 1. deildar lið félagsins í knattspyrnu sér frá falli í 2. deild. Á laugardag flutti félagið formlega í nýja húsið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri afhenti Þrótti húsið á föstudag. Það stendur við hinn nýendurbætta gervigrasvöll. Við vígsluna tók Þróttur formlega yfir rekstur gervigrasvallarins en aðalleikvöllur félagsins er Valbjarnarvöllur.Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, afhenti Tryggva Geirssyni, formanni Þróttar, nýja húsið til afnota.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar