Þróttarar

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Þróttarar

Kaupa Í körfu

Stuðningsmenn Þróttar héldu hátíð um helgina. Á föstudag fékk íþróttafélagið formlega afhent nýtt hús í Laugardal og á föstudagskvöld bjargaði 1. deildar lið félagsins í knattspyrnu sér frá falli í 2. deild. Á laugardag flutti félagið formlega í nýja húsið. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri afhenti Þrótti húsið á föstudag. Það stendur við hinn nýendurbætta gervigrasvöll. Við vígsluna tók Þróttur formlega yfir rekstur gervigrasvallarins en aðalleikvöllur félagsins er Valbjarnarvöllur. Þróttarar fjölmenntu í Laugardalinn á laugardag til að halda upp á flutninginn í nýja húsið.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar