Afhjúpun Kide

Afhjúpun Kide

Kaupa Í körfu

Menningarborgir Evrópu, níu talsins, tengdust í gærkvöldi þegar finnski töfrakristallinn Kide var afhjúpaður samtímis í þeim öllum. Í Reykjavík var Kide fundinn staður á bökkum Elliðaánna, skammt fyrir neðan gömlu rafstöðina við Rafstöðvarveg. Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, afhjúpaði Kide og 100 börn úr barnakórum Breiðholtskirkju, Fella- og Hólakirkju og Engjaskóla sungu ásamt finnskum skólakór undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar