Laugardalur

Þorkell Þorkelsson

Laugardalur

Kaupa Í körfu

Gæfar endur í Laugardal . Vð grasagarðinn í Laugardal er lítil tjörn þar sem endur hafa hreiðrað um sig og virðast njóta þess mjög að vera fjarri glys og glaumi Tjarnarinnar í Kvosinni, þar sem mávager og gæsir hafa gerst frekar til fjörsins seinustu ár. Ljósmyndari Morgunblaðsins rakst þar á vegfaranda vinveittan öndunum fyrir skömmu, sem hafði með tíðum heimsóknum tekist að hæna að sér fuglana. Svo vanar eru þær orðnar þessu mannlega samneyti að þær eru teknar að éta brauð úr lófa hans og bíða í röðum eftir að komast að bitanum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar