Fjölmiðlamótið í knattspyrnu

Jim Smart

Fjölmiðlamótið í knattspyrnu

Kaupa Í körfu

Fjölmiðlamótið í knattspyrnu var haldið um helgina og bar Morgunblaðið sigur úr býtum eftir nauman sigur á Stöð 2 í úrslitum. Var jafnt eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og þurfti vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit. Eftir sex umferðir var staðan enn jöfn en í sjöundu umferð missti vítaspyrna liðsmanns Stöðvar 2 marks og Morgunblaðið stóð uppi sem sigurvegari. Bronsverðlaunin hrepptu leikmenn Fróða eftir sigur á RÚV í vítaspyrnukeppni. Aðrir þátttakendur voru Iceland Review, DV og Viðskiptablaðið. Ragnar Axelsson, Helgi Mar Árnason, Jón Ólason, Björn Arnar Ólafsson, Arnar Unnarsson og Pétur Blöndal í sigurvímu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar