Fjölmiðlamótið í knattspyrnu

Jim Smart

Fjölmiðlamótið í knattspyrnu

Kaupa Í körfu

Fjölmiðlamótið í knattspyrnu var haldið um helgina og bar Morgunblaðið sigur úr býtum eftir nauman sigur á Stöð 2 í úrslitum. Var jafnt eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og þurfti vítaspyrnukeppni til að knýja fram úrslit. Eftir sex umferðir var staðan enn jöfn en í sjöundu umferð missti vítaspyrna liðsmanns Stöðvar 2 marks og Morgunblaðið stóð uppi sem sigurvegari. Bronsverðlaunin hrepptu leikmenn Fróða eftir sigur á RÚV í vítaspyrnukeppni. Aðrir þátttakendur voru Iceland Review, DV og Viðskiptablaðið. Vel fór á með liðsmönnum Morgunblaðsins og Stöðvar 2 þrátt fyrir harðvítugan úrslitaleik.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar