Óhapp á Nýbýlavegi

Ásdís Ásgeirsdóttir
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Óhapp á Nýbýlavegi

Kaupa Í körfu

ÓHAPP varð á Nýbýlavegi við Álfabrekku í Kópavogi í morgunumferðinni í gær þegar sendibifreið frá Blindravinnustofunni lenti í bleytu á veginum og hafnaði á vegriði. Ekki urðu nein slys á fólki að sögn lögreglunnar en nokkrar skemmdir urðu á undirvagni bifreiðarinnar og var hún dregin á verkstæði með dráttarbifreið. Nokkrar tafir urðu á vöruflutningum Blindravinnustofunnar vegna óhappsins, en brugðið var á það ráð að taka bifreið á leigu til að annast flutninga dagsins.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar