Verkamannasamband Íslands

Sverrir Vilhelmsson

Verkamannasamband Íslands

Kaupa Í körfu

Formaður VMSÍ segir brýnt í næstu samningum að hækka lægstu launataxtana Sterkara að koma sameiginlega að málum VIÐ setningu 20. þings Verkamannasambands Íslands í gær lagði Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, áherslu á að verkalýðshreyfingin sýndi ekki veikleikamerki í komandi kjarasamningum við viðsemjendur sína sem myndu mæta til þeirra í vel skipulögðum og nýjum heildarsamtökum. "Skýr stefna er mikilvægari en skipulag og við skulum einbeita okkur að því að ná henni fram hér á þessu þingi," sagði formaðurinn í lok setningarræðu sinnar. MYNDATEXTI: Björn Grétar Sveinsson flytur ávarp við setningu 20. þings Verkamannasambands Íslands.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar