Tryggingastofnun.

Sverrir Vilhelmsson

Tryggingastofnun.

Kaupa Í körfu

Blóðbankinn heimsótti Tryggingastofnun í gær til að taka á móti blóðgjöfum starfsmanna, en Blóðbankinn þarf um 15.000 lítra á ári til að starfsemin gangi eðlilega fyrir sig. Blóðgjafir hafa bjargað ófáum mannslífum og meðal þeirra sem geta þurft á þjónustu Blóðbankans að halda er fólk sem lent hefur í slysum, þeir sem fara í skurðaðgerðir og síðan krabbameinssjúklingar í erfiðri langtímameðferð svo dæmi séu tekin. Við þetta sama tækifæri fékk Tryggingastofnun einnig Hjartavernd í heimsókn og fór stór hluti starfsmanna í blóðsykurs- og blóðfitumælingu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar