Sæbraut við Klöpp

Júlíus Sigurjónsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Sæbraut við Klöpp

Kaupa Í körfu

Karlmaður slasaðist alvarlega og var fluttur til aðgerðar á slysadeild með sjúkrabifreið í gærkvöldi eftir harðan árekstur strætisvagns og bifreiðar við gatnamót Sæbrautar og Klapparstígs á sjötta tímanum. Hinn slasaði var fastur í flaki bílsins eftir slysið og kalla þurfti út tækjabifreið Slökkviliðs Reykjavíkur til þess að ná honum út. Sæbraut var lokuð í eina og hálfa klukkustund meðan lögregla og sjúkralið athöfnuðu sig. Farþega strætisvagnsins sakaði ekki í slysinu en draga þurfti vagninn burtu með kranabíl til skoðunar. Rannsókn málsins er ekki lokið og því ekki vitað hver orsök slyssins en mikil hálka var á götum borgarinnar í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar