Tískusýning á Broadway

Jim Smart

Tískusýning á Broadway

Kaupa Í körfu

Tískusýning á Broadway Glæsileikinn í fyrirrúmi MARÍA Lovísa Ragnarsdóttir fatahönnuður var með sína árlegu tískusýningu á Broadway á dögunum. Sýningin var að sögn Maríu viðameiri í þetta sinn þar sem aldamótalínan í hönnun hennar var kynnt og fékk hún góðar viðtökur meðal gesta. "Ég sýndi m.a. aldamótaklæðnaðinn í línunni minni," útskýrir María Lovísa. "Ég nota margs konar efni í fötin mín, reyni að nota ekta efni eins og ull t.d. En svo nota ég einnig tískuefni sem eru í gangi núna eins og taft og flauel sem eru mikið notuð í selskapskjóla núna." MYNDATEXTI: Ullarpils og skyrta úr tafti.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar