OZ styrkur

Þorkell Þorkelsson

OZ styrkur

Kaupa Í körfu

OZ styrkir sex nemendur Háskóla Íslands um 500.000 krónur Lokaverkefni sem tengjast Netinu SEX nemendur Háskóla Íslands hafa fengið 500.000 króna styrk hver frá OZ.com til lokaverkefna sinna. Auk þess býðst nemendunum vinnuaðstaða hjá Oz. Í september ákvað fyrirtækið að veita nemendum svokallaða Hugarfósturstyrki til lokaverkefna sem fjölluðu um Netið. Átján umsóknir bárust og valdi dómnefnd sex, en nefndina skipuðu, Karolína Stefánsdóttir, tilnefnd af Stúdentaráði, Jón Atli Benediktsson, tilnefndur af rektor HÍ, og Breki Karlsson, markaðsstjóri OZ, til nefndur af OZ. MYNDATEXTI: Styrkþegarnir Freyr Ólafsson, Þorgjörg St. Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Lilja Ómarsdóttir, Birna Guðmunda Guðmundsdóttir, Anna Sigríður Arnardóttir og Njörður Sigurjónsson ásamt Skúla Valberg Ólafssyni, framkvæmdastjóra OZ, og Páli Skúlasyni, rektor Háskóla Íslands.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar