Límtréshús - Norðurorka - Rangárvellir

Rúnar Þór

Límtréshús - Norðurorka - Rangárvellir

Kaupa Í körfu

Tvö iðnaðarhús, samtals 1.630 fermetrar, reist á tíu dögum LOKIÐ var í gær við uppsetningu tveggja iðnaðarhúsa á Rangárvöllum við Akureyri. Hafist var handa við að reisa þau mánudaginn 9. júlí og tók verkið því aðeins tíu daga. Húsin eru keypt hjá Límtré á Flúðum og sáu starfsmenn fyrirtækisins um uppsetningu þeirra. Húsin eru hvort um sig 815 fermetrar að gólffleti eða alls 1.630 fermetrar og eru byggð í einingum og klædd á sérstaka burðargrind sem byggð er úr límtré. MYNDATEXTI: Límtrésskemmurnar eru reistar á mettíma og hér er seinni skemman tilbúin undir klæðningu en að baki má sjá hina tilbúna að utan.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar