Ruslahaugur á Eldborg

rax

Ruslahaugur á Eldborg

Kaupa Í körfu

ÓGRYNNIN öll af rusli voru skilin eftir á Kaldármelum þar sem Eldborgarhátíðin fór fram um verslunarmannahelgina. Umbúðir, fatnaður og ýmis viðlegubúnaður lá þar á víð og dreif á um þriggja ferkílómetra svæði þegar hátíðinni lauk og voru dæmi um að gestir kveiktu í tjöldum sínum og öðrum búnaði áður en haldið var heim á leið. Fá þurfti fjölda manna í gær til að hreinsa til á svæðinu og virtist ekki veita af að taka þar til hendinni síðdegis í gær.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar