Flugslys í Skerjafirði

Flugslys í Skerjafirði

Kaupa Í körfu

Flak flugvélarinnar TF-GTI híft af botni Skerjafjarðar, rétt vestan Nauthólsvíkur á tólfta tímanum á mánudagskvöld. Krani á köfunarpramma var notaður til verksins og var prammanum síðan siglt til hafnar í Kópavogi þar sem flakið var afhent rannsóknarnefnd flugslysa. Þrír menn fórust og þrennt liggur þungt haldið á sjúkrahúsi og er í lífshættu eftir að TF-GTI, eins hreyfils flugvél af gerðinni Cessna 210 Centaurion II, brotlenti í Skerjafirði, skammt undan landi, kl. 20:36 á mánudagskvöld. Vélin var að koma með fimm farþega frá Vestmannaeyjum.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar