Kviknaði í húsnæði Leser tag

Jim Smart

Kviknaði í húsnæði Leser tag

Kaupa Í körfu

ALLT tiltækt slökkvilið í fjórum slökkvistöðvum, í Skógarhlíð, Tunguhálsi, Reykjavíkurflugvelli og í Hafnarfirði, var kallað að Faxafeni 8 laust fyrir kl. hálfþrjú í gær þegar kviknaði í húsnæði fyrirtækisins Dark light sem rekur leikjasal á efri hæð hússins. Rúman klukkutíma tók að finna eldsupptök en aðstæður voru mjög erfiðar vegna reyks og hita. Upp úr hálffjögur hafði tekist að ráða niðurlögum eldsins en slökkviliðið vann að reykræstingu til klukkan sex

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar