Kveikt á jólatrénu á Garðatorgi

Jim Smart

Kveikt á jólatrénu á Garðatorgi

Kaupa Í körfu

Fjöldi skoðaði jólatré og -sveina JÓLASVEINAR hafa í mörgu að snúast þessa dagana enda mannfólkið nú byrjað að tendra ljós á jólatrjám á höfuðborgarsvæðinu. Troða þessir náungar gjarnan upp við slík tækifæri og er ekki óalgengt að sjálfir foreldrarnir, Grýla og Leppalúði, séu þar að auki með í för. Þegar ljós voru kveikt á jólatrjám í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og á Austurvelli í Reykjavík um síðustu helgi, létu jólasveinarnir sig enda ekki vanta og kunnu frá ýmsu að segja. //Í Garðabæ voru ljós tendruð á jólatrénu á Garðatorgi kl. 15.45. Jólatréð er gjöf frá vinabæ Garðabæjar í Noregi, Asker, og var það norski sendiherrann á Íslandi, Kjell Halvorsen, sem afhenti það formlega. MYNDATEXTI: Jólatréð á Garðatorgi er gjöf frá Asker í Noregi.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar