Kveikt á jólatrénu við Flensborgarhöfn

Jim Smart

Kveikt á jólatrénu við Flensborgarhöfn

Kaupa Í körfu

Fjöldi skoðaði jólatré og -sveina JÓLASVEINAR hafa í mörgu að snúast þessa dagana enda mannfólkið nú byrjað að tendra ljós á jólatrjám á höfuðborgarsvæðinu. Troða þessir náungar gjarnan upp við slík tækifæri og er ekki óalgengt að sjálfir foreldrarnir, Grýla og Leppalúði, séu þar að auki með í för. Þegar ljós voru kveikt á jólatrjám í Hafnarfirði, Garðabæ, Kópavogi og á Austurvelli í Reykjavík um síðustu helgi, létu jólasveinarnir sig enda ekki vanta og kunnu frá ýmsu að segja. //Í Hafnarfirði var kveikt á ljósum tveggja jólatrjáa í bænum. Var annað þeirra gjöf frá íbúum Cuxhaven í Þýskalandi en hitt frá íbúum Fredriksberg í Danmörku. Tréð frá Cuxhaven er við Flensborgarhöfn og þar hófst athöfnin með jólatónum Lúðrasveitar Hafnarfjarðar. MYNDATEXTI: Hafnfirðingar héldu mikla jólahátíð á laugardag. Kveikt var á jólatré við Hafnarfjarðarkirkju og öðru við Flensborgarhöfn. Þangað komu jólasveinar og fleira fólk og skemmtu sér hið besta.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar