Göngutúr með Snata

Þorkell Þorkelsson

Göngutúr með Snata

Kaupa Í körfu

Göngutúr á stilltum degi FÁIR ERU á ferli á lóð Háskóla Íslands þessa dagana, enda stúdentar í langþráðu jólafríi. Þeir allra samviskusömustu grúska í námsbókunum og velta fyrir sér kenningum lærimeistaranna en láta fagurlega innpakkaðar jólabækurnar bíða betri tíma. Aðrir fara í rösklega heilsubótar- og hressingargöngu á þessu fyrirtaks útivistarsvæði, enda er fátt betra en góður göngutúr í frísku vetrarloftinu. Göngugarpurinn á myndinni getur heldur ekki kvartað yfir félagsskapnum þar sem Snati fetar trúr og traustur í hvert fótspor eiganda síns. ENGINN MYNDATEXTI.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar