Goðafoss - Lífið um borð

Þorkell Þorkelsson

Goðafoss - Lífið um borð

Kaupa Í körfu

FÆRANDI VARNINGINN HEIM ÞEGAR flogið er með þotu milli landa skekkist tilfinningin fyrir fjarlægðum. Jörðu er sleppt á Íslandi og þremur tímum síðar er lent í heimsborg á meginlandi Evrópu. Álfan virðist svo undarlega innan seilingar./Gámur er ekki fiskkassi Fraktskip eru meðal þeirra farkosta sem bjóða upp á þessa einstöku tilfinningu, að finna fyrir fjarlægðum. Alla daga vikunnar. Árið um kring. Alltaf eru þau á ferðinni, fram og til baka, til og frá og færa heim varninginn sem fólkið þarf að nota til þess að byggja húsin sín, búa til matinn sinn, skreyta stofurnar sínar og klæða börnin sín. MYNDATEXTI: Í vélarsal - Gunnar Ólafsson yfirvélstjóri hugar að aðalvélinni sem er 20 þúsund hestöfl og framleiðir ámóta mikla orku og lítið frystihús notar. Stjórnherbergi vélarsals er tölvuvætt og þar er fylgst grannt með gangi allra tækja. Ennfremur er gengið um salinn og fyrirbyggjandi viðhaldi reglulega sinnt. Í vélarsal Gunnar Ólafsson yfirvélstjóri hugar að aðalvélinni sem er 20 þúsund hestöfl og notar ámóta mikla orku og lítið frystihús.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar