Hvatningarverðlaun

Sverrir Vilhelmsson

Hvatningarverðlaun

Kaupa Í körfu

Afhending hvatningarverðlauna atvinnu- og ferðamálanefndar Mosfellsbæjar fyrir árið 2000 fór fram í Hlégarði í fyrradag, þriðjudaginn 19. desember, og komu þau í hlut Sigurplasts að þessu sinni. Þetta er í annað sinn sem nefndin veitir hvatningarverðlaun. Í fyrra féllu þau í skaut Flugfélaginu Atlanta. Jafnframt veitti atvinnu- og ferðamálanefnd viðurkenningu til Sprotafyrirtækis Mosfellsbæjar í fyrsta sinn og komu þau í hlut Net-Albúms. Myndatexti: Björgvin Njáll Ingólfsson, formaður atvinnu- og ferðamálanefndar Mosfellsbæjar, afhenti Rögnvaldi Pálmasyni, sölu- og markaðsstjóra Sigurplasts, hvatningarverðlaun bæjarins fyrir árið 2000. Milli þeirra stendur Sigurður Bragi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Sigurplasts.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar