Trufluðu slökkviliðsmenn við slökkvistörf

Morgunblaðið/Júlíus

Trufluðu slökkviliðsmenn við slökkvistörf

Kaupa Í körfu

Veitingahúsið Ítalía við Laugaveg 11 stórskemmdist í eldi í fyrrinótt, en engan sakaði í eldsvoðanum. Tveir menn voru hins vegar handteknir fyrir að trufla störf lögreglu og slökkviliðs og íhugar lögreglan að taka hart á slíkum afskiptum í ljósi ítrekaðra tilvika af því tagi. Vegfarendur virtu ekki vettvangslokanir lögreglu á Laugavegi þar sem eldur hafði komið upp í veitingastaðnum Ítalíu Myndatexti: Lögreglan leiðir á brott mann sem fór ekki að fyrirmælum hennar við veitingastaðinn Ítalíu.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar