Nýherji afhendir kennara við HÍ fartölvu

Golli / Kjartan Þorbjörnsson
Fleiri myndir eftir ljósmyndara »

Nýherji afhendir kennara við HÍ fartölvu

Kaupa Í körfu

Þórður Sverrisson afhendir Önnu Dóru Sæþórsdóttur verðlaunin NETVERÐLAUN kennara voru afhent í annað sinn þriðjudaginn 5. febrúar sl. Af því tilefni var haldinn hádegisfundur þar sem Guðrún Ögmundsdóttir, formaður menntamálanefndar Stúdentaráðs, og Þórður Sverrisson, forstjóri Nýherja, afhentu verðlaunin þeim kennara sem þykir hafa skarað fram úr með notkun Netsins við kennslu með það að markmiði að gera kennsluna árangursríkari og skilvirkari. Verðlaunin voru að þessu sinni Thinkpad-fartölva að verðmæti 350.000 krónur. Anna Dóra Sæþórsdóttir, lektor og umsjónarmaður náms í ferðamálafræðum, hlaut verðlaunin fyrir mikið uppbyggingarstarf í ferðamálafræðinni, en hún hefur nýtt sér Netið að miklu leyti við það starf með góðum árangri.

Frekari upplýsingar

Ljósmyndarar

Teiknarar